Spurningar og svör

Spurningar og svör

Er gert ráð fyrir uppþvottavél í eldhúsi?

já það er gert ráð fyrir uppþvottavél en hún fylgir ekki með.

Á þriggja herbergja íbúðum er merkt 3,0 fm geymsla í anddyri verður hægt að tengja þar þvottavél og þurrkara?

Já það er hægt og gert ráð fyrir því í hönnun.

Á baðherbergi er hægt að tengja þvottavél þar?

já það er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Reikna með að það séu geymslur í kjallara hvað eru þær stórar?

Það eru sameiginlegar geymslur í kjallara. Allar íbúðirnar er með litla geymslu innan íbúðar.

Er bílakjallari?

já það verður opinn bílakjallari.

Er lyfta?

Verða tengi fyrir rafmagnsbíla í bílakjallara?

Já möguleiki er á uppsetningu á rafbílahleðslu í samstarfi við Búseta.

Verður aðstaða til að þvo bíla í kjallara?

Nei ekki er gert ráð fyrir bílaþvotti í kjallara.

Hversu stórir eru geymsluskápar í sameiginlegum rýmum í kjallara?

Þeir eru misstórir. Grunnflötur þeirra er á bilinu 0,8x1,16m upp í 1,3x2m. Allir eru með fullri lofthæð. Skáparnir geta nýst fyrir stærri hluti svo sem skíði, golfsett og eða viðlegubúnað.